Skip to main content

Laxá í dölum

Laxá í Dölum

Er ein besta laxveiðiá landsins, og óvíða er meðalveiði hærri þegar horft er á afla á hverja dagsstöng. Þessi margrómaða dalaperla á marga aðdáendur og er eftirsótt meðal veiðimanna.

Í Laxá er veitt á fjórar til sex dagsstangir og allt aðgengi með besta móti. Veiðisvæðið spannar 25 km frá ósi að Sólheimafossi. Því er nokkuð rúmt um veiðimenn bæði við veiðarnar og eins í veiðihúsinu við Þrándargil.

Áin hentar vel þeim sem brúka vilja einhendur við netta, en umfram allt gjöfula laxveiðá sem rennur um söguslóðir Íslendingasagnanna. Laxá er þekkt fyrir gríðarlegar aflahrotur í vætutíð, en nú mun í fyrsta sinn eingöngu vera leyfð fluguveiði í ánni allt sumarið. Veitt er ýmisst í tvo til þrjá daga í senn. 

Veiðihúsið

Veiðihúsið við Þrándargil er glæsilegt og rúmgott. Þar eru átta tveggja manna herbergi til afnota fyrir gesti, glæsileg borð- og setustofa auk gufubaðs. Þar er í boði full þjónusta við veiðimenn, en á vissum tímabilum geta gestir séð sjálfir um matseld ef svo óskað er. Hundahald er ekki leyfilegt í húsinu.

Upplýsingar

  • Stangir
    4-6
  • Fjarlægð frá Reykjavík
    150 km
  • Leiðarvísir
    Directions 
  • Staðsetning
    Laxárdalur
  • Tímabil
    24.June - 30.September
  • Besti Tími
    July/August/Sept
  • Leiðsögumenn
    Í boði sé þess óskað
  • Lodge
    Full service
  • Fishing Type
    Fly-fishing
  • Meðalveiði (10Ár)
    950 Laxar
  • Veiðikort
    Laxa in dolum MAP
  • Upplýsingar
    Pre-travel

River Location

Contact Information