Lýsing
Laxá í Dölum er ein besta laxveiðiá landsins, og óvíða er meðalveiði hærri þegar horft er á afla á hverja dagsstöng. Þessi margrómaða dalaperla á marga aðdáendur, og er eftirsótt meðal veiðimanna. Í Laxá er veitt á fjórar til sex dagsstangir og allt aðgengi með besta móti.
Veiðisvæðið spannar 25 km frá ósi að Sólheimafossi. Því er nokkuð rúmt um veiðimenn bæði við veiðarnar og eins í veiðihúsinu við Þrándargil. Áin hentar vel þeim sem brúka vilja einhendur við netta, en umfram allt gjöfula laxveiðá sem rennur um söguslóðir Íslendingasagnanna.
Laxá er þekkt fyrir gríðarlegar aflahrotur í vætutíð, en nú mun í fyrsta sinn eingöngu vera leyfð fluguveiði í ánni allt sumarið. Veitt er ýmisst í tvo til þrjá daga í senn.
Veiðihúsið við Þrándargil er glæsilegt og rúmgott. Þar eru átta tveggja manna herbergi til afnota fyrir gesti, glæsileg borð- og setustofa auk gufubaðs. Þar er í boði full þjónusta við veiðimenn – en á vissum tímabilum geta gestir séð sjálfir um matseld sé þess óskað. Hundahald er ekki leyfilegt í húsinu.